upphafsraus
jáhá, þá er maður bara búinn að koma sér upp svona blaðursíðu, eins og allir hinir. Það er óþarfi að verða utanvelta í þessu, þó maður sé langt frá því að vera inn í öllu. Hvernig þetta gengur, á svo eftir að koma í ljós, því reynslan er nú ekki upp á marga fiskana þó áhuginn sé fyrir hendi. Blaður og rölf eða rölf og blaður, það verður að koma í ljós. Kanski slysast eitthvað sens í blaðrið, en þá biðst ég fyrirfram velvirðingar á því og lofa að það gerist ekki aftur.
Verður þetta blogg bara fyrir mig, eða hefur einhver áhuga á að skoða blogg hjá fínni dömu með hatt ? Sem leiðir mig að valinu á heiti síðunnar. Ég er nefnilega ekki með hatt og er yfirleitt ekki með hatt. Stundum húfu, ef mér er kalt en ekki hatt. Ætli það komi nú ekki samt að því að ég fjárfesti í einum hatti eða svo, ef svo fer verður það skjalfest samstundist. Kanski komast hattar í tísku, líkklegast. Eru ekki hattar í tísku ? Ég held ég sé bara svo óinnvolvuð í tískuna í dag að ég hef ekki enn keypt mér hatt eða grifflur en það er nú annað mál. Grifflur ? Eru þær í tísku ? Ég er nú aldrei með grifflur, en stundum vettlinga og þá af sömu ástæðu og húfuna.
Hitti mann í gær sem var lögfræðingur. Voðalega geta svona sprenglærðir menn virst óöruggir og stressaðir. Hann vissi alveg hvað hann þurfti að segja og gera, en samt blaðraði hann svo mikla steypu og virtist ekki vita hvernig hann átti að haga sér að maður mátti hafa sig alla við að stressast ekki með honum. Ég hélt þó ró minni og hló inní mér af stressinu í kallinum.
Eigum við ekki bara að segja þetta gott af fyrstu bloggfærslu fínu konunnar með hattinn, sem er ekki með hatt, en það er nú annað mál.
Segjum það

2 Skoðanir:
Hahaha...snilldar heiti á bloggsíðu! Velkomin í bloggheima, bullukollan þín !
Kveðja, Barbapabbi
by
Eygló, at 8:19 e.h.
Gaman að fá að lesa pælingarnar þínar um lífið og tilveruna hvort sem það verður blaður og röfl eða röfl og blaður ;)
kv.Ásta
by
Nafnlaus, at 8:35 e.h.
Skrifa ummæli
<< Heim