Konan með hattinn

föstudagur, júlí 14, 2006

skógareldar

Það verða engir skógareldar hérna, það er klárt. Allavega ekki hér á suð-vesturlandi, við getum huggað okkur við það. Austfirðingar geta hins vegar ekki verið eins bjartsýnir á skógareldalaust ár, þetta árið. Heyrði að það væri kvartað þar yfir miklum þurrki, hefur þeim ekki dottið í hug að koma bara smá stund hingað suður og bleyta sig ? Verð nú að segja að ég væri til í að fara Austur, bara til að sjá hvernig þessi gula lítur út, svona án rigningar. Man það ekki alveg.

Fór í bíó í gær, með hinum unglingunum. Sátum þarna, gömlu hjónin og horfðum á fjölskyldu-gamanmynd, sem þó er bönnuð innan 10. Skil ekki alveg hvernig hægt er að flokka myndir í fjölskyldumynd, sem er bönnuð innan 10. Er maður ekki í fjölskyldunni, fyrr en maður er orðinn 10 ? Fyrsti tugurinn, ég man þegar ég átti 10 ára afmæli, já, fyrir 20 árum. Fannst þetta svakalegur viðburður, fyrsti tugurinn. Nú var maður kominn í fullorðinsmannatölu og gat farið á fjölskyldumyndir bannaðar innan 10. Flott maður.

Segjum það

4 Skoðanir:

  • Hæ..ég var að skoða :)
    Ótrúlega spennt fyrir þessu bloggi þínu og mun fylgjast náið með.

    Kveðja Ester

    by Anonymous Nafnlaus, at 11:44 f.h.  

  • Skemmtilegt blogg Linda :)
    Heehehe skógareldar segirðu :D já það er alltaf gott að líta á björtu hliðarnar á öllu :)

    Kveðja,
    Sigrún Linda

    by Anonymous Nafnlaus, at 4:00 e.h.  

  • Já við megum þakka fyrir skógareldalaust ár. Okkar stóru og gróskumiklu skógar mega náttúrulega ekki verða íslenskri háfjallasól að bráð, þá yrði nú voðinn vís...

    by Blogger Eygló, at 4:20 e.h.  

  • Tja þið vitið hvað þið gerið ef þið eruð týndar í íslenskum skógi?




    Nú standið upp!

    by Anonymous Nafnlaus, at 4:24 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim