Sólarglæta
"Hvað er þetta", hugsaði ég, þegar ég vaknaði í morgun "allt svo þurrt, engir dropar úr loftinu og litlu hríslurnar útí garði þurfa ekki að nota hvern einasta vöðva til að halda sér í moldinni". Ég hélt áfram að láta mig dreyma "kanski kemur sól í dag".
Ég man í fyrra sumar, þegar ég gat legið úti á palli og fengið fallegan lit á skrokkinn. Ég man að ég gat stundum verið léttklædd og notað sumarsandalana mína. Krakkarnir gátu leikið sér í garðinum, léttklædd og á tásunum jafnvel. Núna eru mest notuðu flíkurnar, vetrarflíkur eins og húfa, vettlingar, úlpa og stígvél. Vetrarkápan mín, sem ég keypti á útsölu í vor og ætlaði að geyma fram á haust, er nánast orðin útslitin. Úlpuna mína þarf ég jafnvel að endurnýja í haust.
Er þetta í lagi ? Sættum við okkur við svona skítaveður dag eftir dag, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð ? Nei. Ef ég væri ekki að fara til Danmerkur og Lúxemburg eftir 11 daga, siglingu í Karabíska hafinu eftir 110 daga og Kanaríeyja eftir 163 daga væri ég líkklegast búin að kaupa mér ferð til Búlgaríu, Krítar, Mallorka eða Svíþjóðar jafnvel. Bara eitthvað.
En þar sem ég er svo heppin að vera að fara af skerinu eftir aðeins 11 daga, sætti ég mig við þetta. Ennþá allavega. Vona bara að þetta skítaveður elti mig ekki til útlanda. Sem væri nú alveg eftir því.
Segjum það.

2 Skoðanir:
Ohhh þvílík heppni að vera að fara til útlanda akkúrat núna, ég væri svo meira en til í það !
Sé kanarí alveg í hyllingum..sól..sól...sól...slef !
by
Nafnlaus, at 6:41 e.h.
Sko.......ég þakka fyrir rigninguna og slagveðrið nýkomin úr 37stiga hita í París. Má ég þá heldur biðja um norðangarrann og ferska loftið. Maður getur þó altént klætt af sér kuldann, það er ekki hægt með molluna og hitann. úfffffffffffff, en ég samgleðst ykkur að fara í fríið og vona að hiti verði ykkur ekki til trafala í úttlandinu bkv. m
by
Nafnlaus, at 9:46 e.h.
Skrifa ummæli
<< Heim