Konan með hattinn

mánudagur, júlí 17, 2006

Barnalán

Ég á einn bróður. Bara einn bróður. Langaði alltaf að eiga miklu fleiri systkin og var harðákveðin, að þegar ég færi að hlaða niður börnum, þá myndi ég hlaða niður börnum. 3 börn hið minnsta, ef ekki fleiri.

Ég var stundum vond við bróðir minn. Sé það núna. Hann til dæmis gleymir aldrei og er duglegur að minna mig á, þegar ég plataði hann til að borða súkkulaðirúsínu. Hann borðar ekki rúsínur og þar sá ég góðan leik á borði. Pabbi, hefur líklegast keypt súkkulaðirúsínurnar, sem voru til. Ég erfði súkkulaði- og nammifýkina af pabba. Allavega, til að gera langa sögu stutta, nældi ég mér í eina litla súkkulaðirúsínu og hljóp til bróður míns, sem var grandalaus að leika sér í baði. Hann hefur líklegast orðið hissa á góðmennsku minni, þar sem ég fullyrti að hann mætti eiga þennan súkkulaðibita, sem ég hafði fengið uppí hendurnar. Það er skemmst frá því að segja að súkkulaðirúsínan fékk ekki góða meðferð frá bróðir mínum, en ég gat hlaupið í burtu, skellihlæjandi af uppátæki mínu.

Bróðir minn var samt alltaf góður við mig. Einu sinni, þegar ég var veik kom hann færandi hendi með brúnan 50 króna seðil og gaf mér. Já, hann er gull af manni hann bróðir minn.

segjum það.

1 Skoðanir:

  • Kannast við þetta - mig langaði alltaf til að eiga mörg börn og fleiri systkini ;)

    by Anonymous Nafnlaus, at 1:49 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim