Tölvumál
Ég er með tölvu í vinnunni, eðlilega, þar sem lítið yrði úr vinnu, ef ég hefði ekki tölvu. Ég á líka tölvu heima, eðlilega, þar sem lítið yrði af vinaspjalli og bloggi, ef ég ætti ekki tölvu. Vinnan skaffar mér fartölvu, eðlilega, þar sem ef ég hefði fartölvu, gæti ég ekki unnið heima. Fartölvan fær að fara með mér í nánast allar ferðir, vinnuferðir jafnt sem skemmtiferðir, eðlilega, því hvar væri ég án tölvu ? Er ég tölvusjúklingur ? Já líklegast myndi ég flokkast sem slíkur á einhverjum prófum.
Ég hef oft spáð í það, hvernig fólk vann á skrifstofum, áður en tölvur urðu eins algengar. Það hljóta allir veggir að hafa verið uppfullir af möppum og bréfadrasli, nagaðir blýantar hljóta að hafa sést í hverju horni og gormabækur á borðunum.
Mamma vann á skrifstofu þegar ég var um 10 ára. Á skrifstofunni, þar sem hún vann, var til tæknilegur yddari. Hann var tengdur rafmagni sem gerði það að verkum að maður þurfti ekki að eyða kröftum í að snúa blýantinum ef ydda þyrfti gripinn. Þetta fannst mér, í minni barnslegu einlægni, stór stór merkilegt og tók vinkonur mínar í vettvangsferðir á skrifstofuna til mömmu, til að sýna þeim þennan merka hlut. Vinkonum mínum fannst þessi tæknilegi yddari alveg jafn merkilegur og mér.
jabb, segjum það.

1 Skoðanir:
Híhí..mér fannst svona yddari alltaf svo merkilegur hlutur og finnst eiginlega enn :o)..Hversu nauðsynlegur hann er, er svo kannski annað mál en bráðsniðugur jú !
by
Nafnlaus, at 6:50 e.h.
Skrifa ummæli
<< Heim