Konan með hattinn

miðvikudagur, júlí 19, 2006

Túristar með húfur

ahhh, loksins. Svona lítur hún þá út. Og mikið er hún nú fallega gul og heit.

Fór út í hádeginu. Fékk mér salat á Kaffi Tár í Þjóðminjasafninu. Sátum úti og horfðum á túristana ganga um, kappklædda í góða veðrinu. Sá lítinn strák í þykku dún vesti, karla í flíspeysum og stelpur með húfur. Nei nú ýki ég, sá engar stelpur með húfur, sem betur fer. Ég hefði alveg örugglega stokkið upp og rifið húfuna af stelpunum. Sjáið þið mig ekki fyrir ykkur ? Svo æst alltaf og hvatvís. Gæti átt það til að hlaupa upp og rífa húfu af litlum stelpum, hlaupa svo af stað með húfurnar og fela mig bakvið tré. Hlæja af uppátækinu eins og smástelpa að stríða bróður sínum. Gæti gerst.

Ég man þegar veðrið var svona gott síðast. Það var í maí, þá fór ég og keypti risa sundlaug, til að hafa á pallinum. Hugsaði með mér að gaman væri að hafa sundlaug á pallinum og geta látið renna í hana, eftir vinnu. Ekki grunaði mig þá að sumarið yrði svona vætusamt og kalt. Ég lét renna í sundlaugina, daginn sem ég keypti hana, en hef ekki getað notað hana síðan. Kannski get ég notað hana á eftir, eftir vinnu. Vonandi. Krakkarnir hafa svo gaman að þessu.

Endilega skrifið athugasemdir til mín, þið sem lesið. Það er svo gaman að sjá hvort einhver er að lesa bullið í mér.

segjum það.

3 Skoðanir:

  • Esssssskan mín til hamingju með bloggsíðuna þína. Gaman að lesa það sem þú skrifar. þú hefur alltaf verið skemmtilegur penni. Nú er bara að láta gamminn geysa
    bestustu, m.

    by Anonymous Nafnlaus, at 2:58 e.h.  

  • Hæ, þetta er frábært hjá þér.
    Nú er bara að setja sellurnar á fullt og spila fingrum um lyklaborðið á hverjum degi.
    Til hamingju með framtakið ;).
    Pabbi

    by Anonymous Nafnlaus, at 9:10 e.h.  

  • Bullukolla sem gaman er af. Haltu því bara áfram.

    by Anonymous Nafnlaus, at 1:05 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim