Zombie
Ég var að koma úr Klassískri andlitsmeðferð og litun og plokkun. Lúxus maður !! Ég lít reyndar út eins og Zombie. Ef þið eruð að spá hvernig Zombie lítur út, þá er það eins og ég lít út núna.
Ég gleymi öllu. Síðast fór ég í litun og plokkun fyrir þó nokkuð mörgum mánuðum síðan. Þá sagði snyrtifræðingurinn mér að næst, þegar ég færi í litun og plokkun, mætti ég ekki bera á mig brúnkukrem, tveim dögum fyrir og tveim dögum eftir aðgerðina. Ástæðan var sú að brúnkukremið dregur í sig litinn og augnbrýrnar verða dökk dökk dökkar fyrir vikið. Eruð þið farin að sjá þetta fyrir ykkur ? Ég er búin að hugsa þessi orð snyrtifræðingsins oft síðan. Í gærkvöldi, eftir andlitshreinsun kvöldsins, leit ég í spegil og fannst ég fremur föl og ákvað að bera á mig brúnkukrem. Mundi svo ekki fyrr en ég settist í stólinn í kvöld, að það mátti ég ekki gera.
Klassíska andlitsmeðferðin var frábær, en afleiðing hennar varð, að brúnkukremið, sem lífgaði uppá andlitið mitt í morgun, þvoðist af og eftir varð beinhvíta húðin mín. Hins vegar lituðust augnhárin mjög vel.
Næst ætla ég að muna að bera ekki á mig brúnkukrem.
segjum það.

1 Skoðanir:
Vá hlakka til að sjá þig, en mér finnst hvíta húðin þín mjög falleg og engin ástæða til að fela hana(;-))
by
Nafnlaus, at 12:04 e.h.
Skrifa ummæli
<< Heim