ermalaus eða síðerma bolur ?
Fór í sprautu í dag. Eða sprautur öllu heldur. Þetta voru fjórar sprautur, sem var stungið, tvær í sitthvorn upphandlegginn. Sprauturnar eru ætlaðar, til að fyrirbyggja suður-ameríska sjúkdóma, sem gætu herjað á okkur skötuhjú, þegar við förum í siglinguna í nóvember. Það er nú gott að vera seif með það. Mikið var ég fegin að vera ekki sprautuhrædd. Eina sprautuna kynnti hjúkkan fyrir mér, sem sprauta, sem mann sviði undan og gæti valdið bólgu. Mér varð strax hugsað til ermalausa bolsins, sem ég var búin að ákveða að klæðast í partýinu í kvöld. En hvað um það, ég bjó mig undir óþægindi, en fann ekkert. Eftir að allt var búið, spurði ég hjúkkuna hvort ég gæti átt von á að svíða seinna. Hún horfði undrandi á mig, nei, bara núna áðan. Ég sagði henni að ég hefði ekki fundið neitt. Nei, sagði hún. Þú varst svo afslöppuð og fín, það hlýtur að vera ástæðan. Og vonandi færðu enga bólgu heldur.
Já vonandi. Nú eru nokkrir klukkutímar, þangað til partýið byrjar. Spennandi verður að vita hvort ég verði í ermalausum bol eða hvort ég verði að finna mér síðerma bol fyrir partýið.
segjum það í bili
Já vonandi. Nú eru nokkrir klukkutímar, þangað til partýið byrjar. Spennandi verður að vita hvort ég verði í ermalausum bol eða hvort ég verði að finna mér síðerma bol fyrir partýið.
segjum það í bili

1 Skoðanir:
Þú ert bara hetja!
Ég myndi nú ekki láta stinga mig svona átakalaust..
Og svo varstu langflottust í ermalausa bolnum ;)
bestustu kveðjurnar frá esTer
by
Nafnlaus, at 10:03 f.h.
Skrifa ummæli
<< Heim