Konan með hattinn

sunnudagur, september 17, 2006

Heimsfræg á Players

Kíkti út á lífið í gærkveldi. Fór í brjálað stelpupartý í Hafnafirði sem endaði á dansgólfinu á Players, þar sem hljómsveitin Von spilaði undir dansi. Þar voru tekin nokkur létt spor, sem ég get fullyrt að hafi brennt þónokkrum kaloríum. Það var ágætt, því ég komst ekkert í ræktina í gær. Bætti það upp á dansgólfinu.

Ég og vinkona mín létum okkur ekki nægja að dansa bara á dansgólfinu, heldur drifum okkur uppá svið og hjálpuðum söngvaranum aðeins með textann "Vertu ekki að plata mig, þú ert bara að nota mig. Ég er ekki eins og allar stelpurnar, sem hopp'uppí bíla með hveeeerjummmm sem eeeeeerrrrr". Við vorum bara flottastar.

Önnur skvísan úr hópnum var dregin uppá svið og aðstoðaði söngvarann við "Til hamingju Ísland" sem Silvía Nótt gerði ódauðlegt í Aþenu fyrr á árinu.

Eftir að hafa fengið þetta upplagða tækifæri, vorum við auðvitað allar orðnar heimsfrægar á Players og gáfum eiginhandaráritanir hægri vinstri.

3 Skoðanir:

  • Hæ hin fræga hérna ;o)..hvað segist..?
    Er eitthvað búið að panta okkur um helgina ?
    Allvega..ef þú ert með eitthvað bókað þá er ég laus á laugardagskvöldið hehe..

    Kv. Ester hin fræga
    ps. þú kannski eyðir þessari færslu svo aðdáendurnir verði ekki alveg óðir ;D

    by Anonymous Nafnlaus, at 6:24 e.h.  

  • já uss uss, Ég hef þetta svona leynifærslu bara, svo við verðum ekki ofbókaðar. Heyrðu, já, það er gigg á laugardaginn, Von spilar með Eyríki Hauksyni og okkur....eða vorum við ekki með ?

    by Blogger Linda, at 5:44 e.h.  

  • Heyrðu júúú það bara hlýtur að vera....mætum bara tímanlega :D

    by Anonymous Nafnlaus, at 6:13 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim