Hreyfiþörf
Stundum finn ég fyrir gífulegri þörf til að hreyfa mig. Stundum þarf ég að leita að þessari þörf, því stundum er hún vandfundin. Oft er það þannig, að þegar ég finn þörfina, er auðvelt að halda henni við, en ef eitthvað klikkar og þörfin fer í felur, á ég oft erfitt með að finna hana aftur.
Á laugardaginn, eftir að hreyfiþörfin, hafði verið týnd í rúma viku, fann ég hana aftur. Hún var bara á augljósasta staðnum, ekkert flókið að finna hana. Ég nýtti mér það að vera ein, án barna og buru og dreif mig af stað. Veðrið var það gott, að ég týmdi ekki að fara inní Hreyfingu, til að losa þessa þörf og dreif mig í skokkfötin og út. Veðrið var yndislegt og minnti mig óneitanlega á skokkferðir mínar í sumar í Danmörku. Vitaskuld tók ég mp3 spilarann minn með og valdi nú útvarpsstöð, sem spilar hraða, skokktónlist. Þetta var erfitt og gott.
Í gær fór ég svo í fjallgöngu með vinnufélögunum. Myndir frá ferðinni eru komnar hér inn. Svakalega skemmtilegt að ganga á Keili. Ég mæli með því.
Í morgun dreif ég mig svo á fætur klukkan 5:40 og skutlaðist í ræktina. Náði að taka vel á því. Þó mér hafi ekki liðið sérlega vel á meðan á tímanum stóð, leið mér svakalega vel þegar tíminn var búinn.
Nú er ég að hugsa. Ætti ég að nýta mér að að ég veit hvar þörfin er. Drífa mig á morgun í eitthvað púl, eða taka mér frí á morgun, hætta á að týna þörfinni aftur, en ákveða að ég skuli fara á miðvikudagsmorgun, í ræktina ?
hummmm.......

1 Skoðanir:
Flottar myndir veðrið hefur aldeilis leikið við ykkur. Frábært hjá Bjarka Má að drífa sig með. Jamm, hreyfiþörfin...það er góð þörf. Betra að týna henni ekki (;-)))
by
Nafnlaus, at 8:28 e.h.
Skrifa ummæli
<< Heim