Auglýsingar
Keypti mér forlátan mp3 spilara með útvarpi á leið minni til útlanda um daginn. Datt í hug að sniðugt væri að eiga einn svona lítinn, til að hafa með sér í annars einsömlum göngum og/eða hlaupum. Leyfði spilaranum að koma með mér í skokktúr í gær. Eins og ég er þó tæknivædd og mikill tölvusjúklingur, er ég ekki búin að veita mér tíma, til að læra að setja lög og búa til lagalista á spilaranum, sem vert er að hlusta á í göngu og/eða skokktúrum. Útvarpið varð því fyrir valinu og Bylgjan sett á.
Ég var búin að hlaupa þó nokkurn spotta þegar ég uppgötvaði að ég var orðin vel inní þeim auglýsingum, sem keypt höfðu pláss hjá stöðinni. Fann m.a. út að ef ég væri við tölvu, gæti ég sent starfsmönnum Bylgjunnar tölvupóst og jafnvel unnið mér inn tíma hjá stílista í Debenhams og 25 þús. kr. inneign. Fann líka út að ef ég væri á bílnum, gæti ég náð mér í bylgjulímiða, límt hann í afturrúðuna og jafnvel unnið mér inn sólarferð til Flórída. Eftir að hafa uppgötvað þetta, varð mér ljóst að annaðhvort væri ég á röngum stað, ætti frekar að vera í bílnum eða heima við tölvuna, eða þá að ég þyrfti að skipta um stöð, finna stöð sem spilaði meiri tónlist og minna af auglýsingum.
Þar sem ég var komin það langt áleiðis í skokkhringnum mínum, ákvað ég að seinni kosturinn væri betri. Skipti á stöð sem var þá að spila rapp-lag. Ekki get ég sagt að ég sé mikill rapp unnandi, en mikið var gott að vera hætt að bíða eftir því að auglýsingarnar væru búnar.
segjum það.

1 Skoðanir:
Ha ha ha..skemmtileg lesning.
by
Nafnlaus, at 3:05 e.h.
Skrifa ummæli
<< Heim