Sundsaga
Fór í sund í dag. Valdi mér skápagang, þar sem fæstir voru og plantaði mér þar. Áður en langt um leið kom ung kona með krakkastóð á eftir sér. Öll rennandi blaut með handklæði vafið utanum sig. Ég hjó eftir því að konan og börnin töluðu öll saman ensku og áttaði ég mig þar með á því að líklegast kunnu þau ekki reglurnar, sem hér tíðkast á sundstöðum, að þurrka sér áður en komið er inní klefann.
Krakkarnir og konan hófust handa við að þurrka sér og koma sér í fötin, án þess að nokkuð sæjist í bert hold. Svo vel pössuðu þau uppá líkama sinn, að ég varð hálf spéhrædd og flaug það í hug, hvort þeim fyndist ég djörf að berhátta mig og barnið, þarna á "almanna færi". Ég hélt þó mínu striki og háttaði mig eins og vanalega.
Áður en ég skutlaði handklæðinu utanum mig og hélt í sturtu, tók ég eftir því að konan var að bardúsa við að fara í gallabuxur. Það gékk fremur illa að mér fannst. Eitt barnið, sem þarna var með henni, spurði útí aðfarirnar og konan svaraði um hæl "It's a bit difficult to get into a jeans, when you are wet !" með ekta breskum hreim, eins og ekkert væri sjálfsagðara.
segjum það.

3 Skoðanir:
Úps.. ég skrifaði kommentið við vitlausa sögu (ROÐN)..
Bið að heilsa bara...best að koma sér í háttinn.
kv. Ester
by
Nafnlaus, at 10:45 e.h.
Hæ skvís og til hamingju með þetta fína blogg. Ég verð eflaust fastagestur hér :-)
Go girl,
Auður
by
Nafnlaus, at 11:37 e.h.
Kannast við þetta. Ég fór í nýja fína sundlaug í eða við London. Þar fékk maður klefa til að afklæðast og fara í sundföt, síðan var farið í sturtu konur og karlar saman en allir í sundfötum.
Flott blogg hjá þér
Kv.
P
by
Nafnlaus, at 11:03 e.h.
Skrifa ummæli
<< Heim