Konan með hattinn

sunnudagur, júlí 23, 2006

stuttbuxur eða síðbuxur

Ég er á leið til útlanda með mig og mína fjölskyldu. Fyrir eitt stykki útlandaferð þarf að pakka heilmiklu. Þó ekki meiru en ef haldið er í ferðir innanlands.

Ég fór í dagsferð í gær, með famelíuna. Ferðinni var heitið á ættarmót í Fljótshlíð. Fórum af stað um morguninn og komum heim um kvöldið. Mér fannst í ferðinni, að ég hefði ekki tekið með nóg af fötum. Ég klæddi krakkana í stuttbuxur innanundir buxurnar, passaði að þau væru í stuttermabolum undir síðerma peysunum. Pakkaði niður regnfötunum, húfunum, vetlingunum og stígvélunum. Það rigndi ekki en það var kalt. Það voru vonbrigði. Ég sem var að vonast til að geta rifið börnin úr síðbuxunum og leyft þeim að spígspora um sveitina á stuttbuxum og stuttermabol. Ég saknaði vetrarúlpunnar minnar og sokkabuxnanna. Samt var ég í tveimur hlýjum peysum og með ullarvetlinga. Sem betur fer, fór ég í gönguskónum mínum í staðin fyrir að fara á töflunum, eins og ég var að hugsa um að gera.

Ég er að vona að ég fái gott veður í útlöndunum. Ég ætla að sleppa því að pakka niður vetrarúlpunum, sokkabuxunum, lopavetlingunum og ullarsokkunum. Hins vegar læt ég pollafötin og stígvélin ekki vanta í töskuna. Betra að hafa varan á.

segjum það í bili.

3 Skoðanir:

  • tek undir það með þér .. alveg ótrúlegt hvað maður getur pakkað miklu niður fyrir innanlandferðir!

    by Anonymous Nafnlaus, at 10:41 e.h.  

  • Hæ ! Ég var að lesa :) Var einmitt að koma heim úr islenskri helgarferð og íbúðin er á kafi í óhreinum fötum,hreinum fötum og öllu þar á milli..
    En ég myndi bara gerast bjarsýn og skilja pollagalla og stígvél eftir heima..

    by Anonymous Nafnlaus, at 10:35 f.h.  

  • Hehehe...

    Til lukku með daginn annars :)

    kv. Ester

    by Anonymous Nafnlaus, at 10:44 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim