Konan með hattinn

fimmtudagur, ágúst 31, 2006

Í pilsaskapi

Ég vaknaði í pilsaskapi í morgun og fann mér pils til að trítla í, í vinnunni. Sniðugt að vakna svona morgna, þar sem maður er alveg viss, í hvaða föt maður vill fara og fötin, sem verða fyrir valinu eru hrein meira að segja. Yndislegt alveg.

Suma morgna klæði ég mig í nokkra umganga af fötum, áður en ég finn réttu samsetninguna, sem miðast við skapið hverju sinni. Suma dagana er ég bara ekki í pilsskapi, þá er ég kannski í gallabuxnaskapi eða jafnvel buxnaskapi, sem mega þó alls ekki vera gallabuxur !!

Já, ég get verið skrítin skrúfa.

Marga daga lít ég inní fataskápinn og finn ekkert til að vera í. Þá dreg ég þann úrskurð, að ég nauðsynlega þurfi að versla mér föt. Ég eigi ekkert til að fara í og allir eigi miklu meira og fallegri föt en ég. Þetta er ágætis ástæða til að rækta eitt áhugamál mitt, sem er jú, að versla föt.

Mér finnst það svo gaman. Finnst langskemmtilegast að fara alein í búð og skoða og skoða, engum háð. Þá skoða ég og máta og skoða og met og máta og skemmti mér konunglega.

Já, lítið er ungs manns gaman....því ég er ung ennþá, bara rétt orðin þrítug...

segjum það.

3 Skoðanir:

  • Þú hefur það ekki frá mér að hafa gaman af því að skoða og versla föt. ÉG tek út fyrir það. Vil helst geta farið í eina búð þar sem mátunarklefinn er stór og rúmgóður og tvær afgreiðslukonur snúast í kring um mig og bera í mig föt.
    m.

    by Anonymous Nafnlaus, at 2:25 e.h.  

  • hehe, jii, ég vil helst vera alein með þetta og alls ekki að afgreiðslustúlkurnar séu að stjana of mikið í kringum mig :p.

    by Blogger Linda, at 9:14 f.h.  

  • COOL myndir !
    Þú ert nú meiri prílarinn.

    by Anonymous Nafnlaus, at 1:17 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim