Konan með hattinn

mánudagur, ágúst 28, 2006

Þvottahústiltekt

Tók til í þvottahúsinu í gær og núna á ég ekkert ruslherbergi. Ég henti öllu sem átti að geymast þangað til ég nauðsynlega þyrfti að nota það, en hafði ekki notað það í þau rúm 3 ár síðan ég flutti. Geymdi þær flíkur sem voru heilar og henti þeim sem ekki voru það. Þurrkaði ofan af hillum, úr loftinu og af veggjunum. Núna er gaman í þvottahúsinu. Ég gat ekki hamið mig og strunsaði í þvottahúsið í morgun, fljótlega eftir að ég vaknaði og áður en ég brunaði í vinnuna. Braut saman þvottinn úr þurrkaranum, skutlaði þvottinum úr þvottavélinni í þurrkarann og læddi svo að lokum óhreinum þvotti í þvottavélina.

Hvaða heimilisstörf finnst fólki skemmtilegast að gera ? Mér finnst skemmtilegast í þvottahúsinu. Mér finnst ekkert gaman að ryksuga, skúra og þurrka af, enda ákváðum við hjónin að heillavænlegast væri að ráða manneskju í þessi verk. Það væri bara gott fyrir hjónabandið og sálina að fá utanaðkomandi aðila til að sjá um það. Og ó boy hvað við höfðum rétt fyrir okkur. Það er yndislegt að koma heim á fimmtudegi, í allt hreint og fínt og þurfa ekki að pæla í hreingerningum alla helgina. Það er þá hægt að nýta tímann í eitthvað annað, eins og þvottahúsatiltekt.

segjum það.

2 Skoðanir:

  • Leiðinlegast að taka upp úr helvítis uppþvottavélinni! Sem er skrítið þar sem ég elska þessa vél og gæti ekki án hennar verið.

    Skást að setja í þvottavél.. ekki að taka úr henni samt.

    by Anonymous Nafnlaus, at 10:28 e.h.  

  • Mér finnst fínt að skúra,þurrka af og ryksuga,..en ég þoli ekki helv...þvottinn !
    Til lukku með hreina og fína þvottahúsið.

    by Anonymous Nafnlaus, at 9:45 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim