Maraþonkúkasaga með athugasemdum
Titillinn er bara fyrir hann brósa litla í pilsalandinu.
Er ekki annars komin tími á eina Magna-færslu ? Ekkert smá flott hjá honum, komandi frá Fróninu mikla í Norðurhöfum, á hjari veraldrar, þar sem alltaf þarf að vera með húfu, vettlinga og ullarsokka og aldrei er hægt að nota regnhlýfar, ekki það að lítið sé um rigningu, heldur hefur engum dottið í hug að hanna regnhlýfar, með hliðarvörn og öryggispúðum.
Já, hann Magni okkar er að standa sig vel. Og fólkið allt, stendur sig vel í að kjósa hann. Núna, get ég ekki falið mig lengur á bakvið þreytu og næst verð ég að vakna og kjósa. Ekkert röfl. Hann Magni okkar var í annað skiptið meðal þeirra þriggja neðstu í kosningunni og það má bara ekki gerast. Það verður ekkert gaman að horfa á þáttinn ef hann Magni okkar er ekki í honum.
Hvað gerist í húsinu, ef Magni er ekki til að stilla til friðar ? Það færi allt í háaloft, hinir keppendurnir myndu ekki vita hvernig ætti að velja lögin. Það myndu allir hlaupa berrassaðir kringum laugina, slást og berjast um bestu lögin og þetta yrði bara eitt stórt svall og svínarí.
Ég verð að hugsa um aumingja keppendurna í Rocstar og halda honum Magna okkar inni.
Lofa að kjósa næst.
Segjum það.

6 Skoðanir:
Þú lofar!!!!!!!
by
Nafnlaus, at 1:11 e.h.
amm, ég lofa. Get ekki verið þekkt fyrir að hafa verið "sú sem kaus ekki Magna og þessvegna datt hann út" :S Gæti nottla lent í því að verða "sú sem kaus ekki nógu oft og þessvegna datt hann út"....humm...það er vandlifað....
by
Linda, at 1:23 e.h.
Maraþonkúkasagahvað???? Vonandi kjósa allir sem vettlingi geta valdið og vaknað Magna. Hann stendur sig sko sannarlega vel. Ég er viss um að hann brósi þinn sendir 10 SMS í hvert skipti sem Magni syngur (:-)))
momms.
by
Nafnlaus, at 8:47 f.h.
skoh... hefðir ekki getað valið betri titil á færslu um helv... hann magna... já ég mundi frekar eyða peningum í að kaupa ryk og baða mig upp úr því enn að kjósa það helvíti,,, ef það er eitthvað sem fer meira í taugarnar á mér enn raunveruleikaþættir þá er það magni... hana nú!!
by
sIr bAy, at 2:52 e.h.
baða þig uppúr ryki, nei nei, ekki gera það. Kjóstu frekar hann Magna greyið, svo hann komist ekki heim ;)
by
Linda, at 3:22 e.h.
Áfram Magni :)
Kv. Ester
by
Nafnlaus, at 9:43 f.h.
Skrifa ummæli
<< Heim