Konan með hattinn

miðvikudagur, ágúst 23, 2006

Athugasemdir

Já, annaðhvort er röflið mitt svo hneykslanlegt að ekki er vert að commenta á það, eða allir búnir að gleyma mér og mínu tuði. Hvort sem er, er ég farin að sakna annars áhugaverðra athugasemda fárra, en dyggra og góðra lesenda minna. Kannski þarf ég að auglýsa bloggið mitt aftur og vel, svo fólk kíki við hjá mér og láti verða að því að koma með eins og eina athugasemd eða svo.

Var það kúkasagan sem fór svo fyrir brjóstið á fólki, að enginn þorir að segja neitt ? Er það sumarið og sólin sem veldur því að bloggheimur minn gleymist ? Er það vinnuálag og streita kannski, sem fólk hrjáist af og veldur því að röfl mitt flýgur festulaust um veraldarvefinn, án þess að nokkur taki eftir því ? Eða var það bloggfríið mitt, sem olli því að fólk gafst upp, hélt ég hefði gefist upp og ákvað að vera ekki að eyða dýrmætum og annasömum tíma sínum í blogg konu með hatt sem bloggar ekkert ? En ég er ekki hætt, langt frá því. Á margar sögur í handraðanum svo bíðið bara.

Og koma svo. Einn tveir og comment !!

og segjum það í bili.

5 Skoðanir:

  • komment!

    by Anonymous Nafnlaus, at 1:33 f.h.  

  • hehe, takk Ásta ;)

    by Blogger Linda, at 9:21 f.h.  

  • Ég er ekki búin að gleyma þér..fríið þitt fór bara alveg með mig :(
    EN núna er að komast rútína á mig aftur og ég fer að kíkja reglulega á þig aftur.

    Netknús!

    by Anonymous Nafnlaus, at 3:03 e.h.  

  • Það er kanski spurning um að kridda sögurnar aðeins betur, maraþonkúkasaga með athugasemdum væri til dæmis góður titill... hehe annars kemur að því að ég blogga systir góð, það kemur að því... múhahahahahahaha (hóst)..(ræsk).. hahahahahaha

    by Blogger sIr bAy, at 5:51 e.h.  

  • Kíki á oft á þig Lady fine. Veit að þú hefur frá mörgu og skemmtilegu að segja. Er ekki endilega að velta blogg-titlum fyrir mér heldur því sem þú skrifar. En engu að síður getur gott krydd gert góða sögu enn betri.

    kv, sara

    by Anonymous Nafnlaus, at 11:51 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim