Maraþonhlauparar
Fór með minnsta ungann í Latabæjarmaraþonhlaupið á menningarnótt (dag). Upphitun fyrir hlaupið hófst með því að Solla Stirða mætti á sviðið til Jónsa í svörtum fötum og söng höfuð, herðar hné og tær, með tilheyrandi handaútréttingum. Allavega hélt ég að þetta hafi verið hin víðfræga Solla, sem hélt uppi stuðinu, í eigin persónu, en vegna mikils mannfjölda og því að ég sjálf, er ekki ýkja há í loftinu og hafði klikkað á því að mæta með stulturnar, var ég ekki viss um hvort það var hún sjálf, sem söng annars þetta fallega lag, eða hvort lagið hefði verið spilað af kassettu.
Leið og beið og loks var komið að því að hlaupið skildi hefjast. "Einn, tveir og byrja" heyrði ég og ætlaði af stað. Við unginn tókum hænuskref og komumst áfram, þó hægt væri. Loks komumst við undir rásmarkið og af stað í hlaupið. Sáum Sollu á sviðinu þegar við mjökuðumst framhjá og urðum með því þess fullviss, að hún sjálf hefði sungið lagið, en það hefði ekki verið spilað af kassettu. Við vorum ánægðar með það.
Það er skemmst frá því að segja að við mæðgurnar kláruðum hlaupið á met tíma, náðum 1 og hálfum kílómetranum, sem hlaupið spannaði á innan við klukkutíma og geri aðrir betur. Enduðum á því að berja íþróttaálfinn sjálfan berum augum og næla okkur í verðlaunapening.
Unginn var ánægður með hlaupið og daginn og endaði daginn, áður en Óli Lokbrá náði að klófesta hana, með því að lýsa því yfir að það hefði verið "ofsalega gaman í dag".
Segjum það.

0 Skoðanir:
Skrifa ummæli
<< Heim