Íslensk amerísk næsta súper módel
Afhverju ekki ?
Ég meina, nú eigum við tvímælalaust langbesta rokksöngvara heims, langbesta spennubókarithöfund heims, langfallegustu fegurðardrottningar heims, langfallegasta og hreinasta landið, langhreinasta og bragðbesta vatnið og svo framvegis og svo framvegis.
Núna er Magna-æðið að ganga yfir, það er bara einn þáttur eftir. American next top model er byrjað og það er engin íslensk fyrirsæta, sem komst í hópinn !! Datt kannski engri af okkar fallegu fyrirsætum að reyna að meika það á þessu sviði ? Ég hef ekki horft á The Condenter, en mér skilst að það sé engin fulltrúi íslensku þjóðarinnar þar heldur. En við erum samt langbest í slagsmálum, lang agalausust og vökum lang lang lengst á nóttunni og drekkur langmest af áfengi (miðað við höfðatölu).
Já, hvað er það annars ? Höfðatala ? Eins gott að allir íslendingar séu með höfuð, því annars eru þeir ekki með í þessari umræddu og/eða alræmdu höfðatölu. Jú, ætli það séu ekki flestir með höfuð. Langalgengast allavega. Það er allavega normið....held ég.
segjum það.

1 Skoðanir:
jesúsminnstyrkimigogstyðji, já örugglega höfðatalan en ekki heilasellurnar. ÉG segi nú bara svona. Momms
by
Nafnlaus, at 9:06 e.h.
Skrifa ummæli
<< Heim