Konan með hattinn

mánudagur, september 18, 2006

kynþáttaskipting

Survivor byrjar í kvöld. Jess !! Þá hef ég eitthvað að gera á mánudagskvöldum. Mánudagskvöldin hafa verið frekar róleg og einmannaleg í sumar. Þriðjudagskvöldin líka, en miðvikudags- og fimmtudagskvöldin voru alltaf tilhlökkunarefni, því þá steig hann Magni á svið, aftur og aftur. Eins gott að "við" Íslendingar vorum dugleg að kjósa hann. Það hefði ekkert verið gaman að sjá Rockstar, ef Magni hefði fallið út í fyrstu þáttunum. Ég set "við" innan gæsalappa, því ekki get ég státað að því að hafa verið dugleg að kjósa. Aldeilis ekki. Kaus stundum í Ástralíu og á Hawaii, þar sem það var á heppilegri tíma fyrir mig. Get engan vegin vakað svona á nóttunni.

En já, Survivor í kvöld. Klukkan níu, sem er góður tími fyrir mig. Nú á víst að raða í hópa eftir kynþætti. Hvað er nú það ? Mér finnst það nú soldið hættulegt. Er ekki nóg um kynþáttaerjur nú þegar ? Var að fletta í gegnum myndir úr þættinum, þetta virðast vera fjórir hópar, svartir, hvítir, asíufólk og spánverjar....jahérnahér.

Jæja en hvað um það. Skrítin hópaskipting eða ekki, það er alltaf gaman að fylgjast með survivor.

0 Skoðanir:

Skrifa ummæli

<< Heim