Geð hvað ?
Fór í Ráðhúsið í dag. Þar var dagskrá sem var í tilefni alþjóða geðheilbrigðisdagsins, sem er núna á þriðjudaginn. Þetta var fínasta skemmtun bara, þarna kom geggjaður trúbador, fáránlega frábær og geðveikir fyrirlesarar, ógeðslega geðveikt fyndnir kynnar og ferlega fyndnar, hressar og geðbilað flottar leikkonur, sem dönsuðu og sungu geggjað skemmtileg lög. Allir geðveikt sætu og flottu krakkarnir hópuðust að leikkonunum, enda ekki annað hægt en að laðast að svona geggjað hressum Skoppu og Skrítlu sem eru alltaf í svo geðveikt góðu skapi. Á eftir fengu svo allir ógeðslega geðveikt góðan ís.
Kynnarnir sögðu að fyrr um morguninn, hefði verið keppt í geðhlaupi og geðsundi. Þeir sögðust hafa fregnir af því að á næsta ári yrði líka sérhannaður ratleikur, sem bæri heitið Geðhvörf. Fólk sem tæki þátt, og kæmist ekki í gegnum þrautirnar fengji þá geðhjálp. Hægt væri að keppa í köfun í geðsýki og sigurvegarinn yrði þá geðgóður í köfun. Þá væri ráð að hafa ræktunnarbúðir, yfir sumartíman. Þeir sem færu þangað væru í geðrækt.
Já, það er gott að geta hlegið og gert grín að sjálfum sér og hvað þá að gera grín að svo alvarlegum hlut sem geðveiki er. En ef húmorinn er ekki til staðar, hvar er þá geðheilsan ? Ekki til staðar, get ég með sanni sagt.
Því er ráð að hafa gaman og gera geggjað grín af öllu sem manni dettur í hug.
Ekki satt ?

7 Skoðanir:
Ég er innilega sammála, ef húmorinn er ekki í lagi þá er eins gott að.... ja, bara koma honum í lag.
Á næsta ári á líka að grafa rásir eða skurði og keppa í að klofa yfir. Sigurvegarinn verður svo "geðklofi" ársins.
by
Nafnlaus, at 11:55 e.h.
alveg rétt. Þetta verður flott íþróttamót ;)
by
Linda, at 1:13 e.h.
Takk fyrir síðast, það er aldeilis geðprýðin. Ekki hér um geðprýðisröskun að ræða eða hvað??? Flott bolgg hjá þérskan
by
Nafnlaus, at 7:50 e.h.
Nei, það væri nú slæmt að vera með geðprýðiröskun. Eins gott að ég slapp við hana ;)
by
Linda, at 6:16 e.h.
Greinilega geðveikislega cool að vera geðveikur :D
kv.Mekga.
by
Nafnlaus, at 1:37 e.h.
Halló, haaaaaaaalllllóóóoooooo hvar er bloggarinn??????????? e.t.v. geðröskunarhvíld?? eða bloggröskunarleti (:-)))
by
Nafnlaus, at 8:31 e.h.
Smá Geðhvarfabloggröskunarleti hér í gangi. Nýtt blogg væntanlegt þá og þegar.
by
Linda, at 3:27 e.h.
Skrifa ummæli
<< Heim