Sa´va ?
"Er ekki örugglega til hrísgrjón ?" spurði maðurinn minn mig áðan. "Jú, örugglega" svaraði ég og þar með var málið útrætt. Maðurinn minn fékk samt ekki svar við spurningunni sinni, eða ekki það svar sem hann vildi. Með "örugglega" átti hann við "pottþétt" en í svarinu mínu þýddi "örugglega" "líkklega" eða jafnvel "kanski".
Þetta leiddi hugann til þess, þegar ég var í tvo mánuði, yfir sumartíma í Frakklandi. Passaði þar börn og sólaði mig og lærði oggu poggu pínulítið í Franskri tungu. Frakkar segja "sa'va" við öllu. Þegar fólk hittist segir það "Sa'va" þar sem "va" syngur á hærri nótu. Það þýðir "Góðan daginn/kvöldið, hvað segir þú gott í dag ?" Viðmælandinn gæti þá sagt "Sa´va" með óbreyttum tón, sem þýðir "jú, alltílagi, en samt er eitthvað svona smávægilegt í gangi". Eða hann gæti sagt "Sa´va" þar sem "va" tónninn leitar niður á við, í bassa. Þegar "Sa´va" er sagt á þann máta, þýðir það "Mér líður ekki vel, það er eitthvað mikið að og mér líður illa". Einn kostur er að segja "Sa´va" og syngja "va" á hærri nótu. Það útlegst þá "mér líður bara mjög vel, er í sjöunda himni". Einn kostur er svo eftir, þá er sagt "Sa´va bien" þar sem "va" er sungið með hærri tón og Bien sagt með stóru brosi. Og hvað haldiði að það þýði ? Og getið nú
Sa´vaaaaa ??

1 Skoðanir:
gövöð, franskan er svo flókin. ÉG hef ekki hugm. um hvað þetta þýðir?
E.t.v. ég hef það bara helvíti gott!! Eða þér kemur ekki við hvernig mér líður?
úffffffff momms
by
Nafnlaus, at 7:54 e.h.
Skrifa ummæli
<< Heim