Sumarbústðarhelgi
Helginni eyddi ég í sumarbústað með famelíunni og huldukonufamelíum mínus einni huldukonufamelíu reyndar. Þetta var afskaplega vel heppnuð ferð. Með í för voru 3 unglingar (9 ára), 3 hálfunglingar (6 ára), einn krakkalingur (4 ára) og eitt pelabarn (1 árs). Unglingar og hálfunglingar sváfu á svefnloftinu og fór vel á með þeim þar. Þau töluðu þar hvert uppí annað, alla nóttina. Við fjölskyldan fengum eitt herbergi, ég var sett í efri kojuna, sökum þess að fatlaði eiginmaður minn þóttist ekki geta klifrað (jahérna). Famelían að Maríubaug fékk hitt herbergið og Vættuborgarliðið fékk stofuna.
Þarna var mikið borðað og leikið. Krakkarnir léku sér saman og skemmtu sér alveg jafn vel og við fullorðna fólkið. Þegar börnin voru sofnuð spiluðum við fullorðna fólkið piconary, strákar á móti stelpum getiði bara hver vann ;).
Skemmtileg helgi sem verður án efa endurtekin !!

0 Skoðanir:
Skrifa ummæli
<< Heim