Það gerist aldrei neitt
Í vinnunni eru fullt af verkefnum, sem ég tek með mér heim og held áfram að vinna með heima á milli þess sem ég sinni heimilisstörfunum, hjálpa syninum að læra, tjónka við lítilli prinsessu á mótþróaskeiði og reyni að vera góð eiginkona. Inná milli þessa atriða skipulegg ég með vinnufélögum árshátíð í vinnunni minni, þemadaga og önnur skemmtilegheit, finn bestu leiðir og lausnir fyrir son minn, sem þar utanumhald og reyni svo í restina að hugsa um sjálfa mig.
Ég reyni að komast í bað stundum og þá læt ég renna í sjóðheitt bað og helli "relax" baðfroðu í. Ligg svo í sjóðandi baðvatninu þangað til beinin fara að losna og stend þá upp, þurrka mér og fer í náttarana, flíspeysuna og ullarsokkana og skríð uppí sófa, undir teppi og horfi á imbann.
Á kvöldin horfi ég á þættina mína; Lost og Heroes á mánudögum, American next top model á miðvikudögum, House og Jherico á fimmtudögum og Survivor á föstudögum.
Um helgar keyri ég börnin á æfingar, laga til og snurfusa, stunda skemmtanalífið temmilega og ef ég á lausa stund hugsa ég um sjálfa mig og reyni að vera góð mamma og eiginkona.
Stundum, en alltof sjaldan hef ég samband við vinkonur, spjalla í tölvunni eða síma, fer í saumó, kaffihús eða annað, fjarri heimili og vinnu.
Já, það gerist aldrei neitt......einmitt

0 Skoðanir:
Skrifa ummæli
<< Heim