veikindabæli
Sko, fyrst byrjaði Katla að æla. Klukkan 8 á sunnudagsmorguninn fyrir viku. Morguninn eftir að ég fór með Ester á Players, þar sem við dönsuðum, tjúttuðum, hlupum undan bjórslettum og skvísuðumst langt frameftir kvöldi. Katla var svo með ælupest í tvo sólahringa og fékk þá hita. Ég og Diddi skiptum á milli okkar dögunum og vorum til skiptis heima. Katla fór svo loksins á leikskólann sinn á föstudaginn. Bjarki Már tók svo við í gær morgun og ældi allan laugardaginn. Svaf svo í nótt og vaknaði bara nokkuð hress í morgun. Lék sér í tölvunni og allt, en lagðist svo í sófann og lá þar í allan dag. Svaf og vakti til skiptis en fór ekki úr sófanum. Inná milli veikinda barnanna náði ég að næla mér í hálsbólgu og fullt nef af kvefi. Íbúfen var mikill vinur minn í gær og neseril í dag (já og í gær reyndar líka).
Vona bara að ég fái ekki þessa pest sem börnin eru að fá. Held ég myndi ekki óska mínum versta óvin því að fá þetta ógeð.
*hóst* *hóst* *snýt* *snýt*
Vona bara að ég fái ekki þessa pest sem börnin eru að fá. Held ég myndi ekki óska mínum versta óvin því að fá þetta ógeð.
*hóst* *hóst* *snýt* *snýt*

0 Skoðanir:
Skrifa ummæli
<< Heim