Óskilamunalánsskór
Fór í ræktina í dag. Ætlaði fyrst að fara í morgun og var búin að taka allt til, þegar á hólminn kom, var ég ekki upplögð í það, ætli það hafi ekki verið flugþreyta bara, en að plaga mig. En, hvað um það. Ég vaknaði alltofseint og henntist í sturtu. Ákvað að drösla leikfimidótinu með í bílinn, fyrst það var nú tilbúið.
Frá því uppúr hádegi, byrjaði ég að hlakka til að komast á hlaupabrettið í Hreyfingu. Þraukaði þó út vinnudaginn, en strax og hann kláraðist, var stefnan tekin á Hreyfingu. Þegar ég var komin mundi ég eftir því að kortið mitt, var í úlpunni minni og ég var í kápunni. Jæja, það hefur nú komið fyrir áður, svo ég staulaðist inn úr kuldanum, upp stigann og bað stelpurnar að slá inn kennitöluna mína, svo ég kæmist nú á brettið. Það var lítið mál og inn fór ég. Ég byrjaði að týna af mér spjarirnar, en þegar kom að skónum, uppgvötvaði ég að þeim hafði ég gleymt heima.
Nú voru góð ráð dýr. Minn litli heili fór á fullt. Hlaupabrettið, sem ég hafði séð í hyllingum, frá hádegi, var bara rétt innan seilingar og ekki gat ég farið á það á sokkaleistunum. Ekki gat ég heldur notast við skvísu stígvélin sem ég kom í, hefði ekki komist langt, né hratt á þeim.
Eftir miklar pælingar og marga hringi, ákvað ég að fara fram og spyrja stúlkurnar hvort þær ættu skó til að lána mér (maður veit jú aldrei, nema maður spurji). Mér var réttur lykill og sagt að skoða óskilamuni. Skoða íþróttaskó í óskilamunum, það sem maður leggur á sig ! Júbb, inn fór ég og leitaði í gegnum skóhrúguna. Fann eina númer 37.....mátaði, of litlir. Fann aðra númer 38,5. Þeir pössuðu ágætlega, en voru samt aðeins of stórir. Ég ákvað að setja þá til hliðar og skoða aðeins betur. Fann enga betri svo ég tók þá og skutlaðist á brettið.
Ég datt ekki, sem er kostur og náði að hlaupa púlsinn upp í hámark. Í óskilamunalánsskóm.
Og ef einhver er að bíða eftir ferðasögu, bíðið bara aðeins lengur. Stefnan er að hún verði tilbúin um helgina.
Segjum það í bili

3 Skoðanir:
Nú er ég hneyksluð !
Það er ekki búið að skrifa hérna síðan um miðjan nóvember..mætti halda að þú hefðir eitthvað annað og meira að gera en að sitja heima og gera ekki neitt..híhí..
En ég get nú ekki sagt mikið,stend mig enn verr en þú.
En ég kikí alltaf reglulega, hlakka til að lesa næstu skrif.
by
Nafnlaus, at 11:03 f.h.
Geri ráð fyrir að anomymous hér að ofan sé Ester...eða hvað ? ;)
jámm, nú fer blogglægðin að ganga yfir og bloggsólin að skína....bráðum sagði sá lati (eða á morgun, get ekki lofað því svo ég held mig við bráðum)
by
Linda, at 10:40 e.h.
hvurnig erðettaeiginlega er bráðum ekki að koma??? Maður kíkir hér inn reglulega og það er bara engin hreyfing (;-))) mamamamabara áttarsigekkiáðessu
by
Nafnlaus, at 3:30 e.h.
Skrifa ummæli
<< Heim