Konan með hattinn

miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Í dag er ég búin að.....

  • Fara á einn fund
  • Skoða 6 tölvutengiskápa í vinnunni og gera innri úttekt á þeim
  • Klára að gefa út nýja útgáfu af skipulagshandbók fyrir deildina
  • Skrifa 6 cd með nýju útgáfunni af skipulagshandbókinni
  • Fara í litun og plokkun
  • Fara í klippingu og lit/strípur
  • Ná í tölvuna í viðgerð
  • Ná í innlegg í íþróttaskóna
  • Skoða jakkaföt með eiginmanninum
  • Setja í eina þvottavél (er að fara að setja í aðra núna)
  • Ganga frá þvotti og brjóta saman þvott
  • Borða tælenskan mat með tengdaforeldrum, manninum og börnum
  • Ráða við eitt barn sem fékk brjálaðiskast, ruslaði til í herberginu sínu (eftir að hafa verið rétt búinn að laga til)
  • Koma öðru barni í háttinn, sem var ekki á þeim skónum að fara að sofa eða hlýða yfir höfuð
  • Horfa á American Next Top Model
  • Klára að fylla út skjöl, sem þarf vegna ferðarinnar
  • Kíkja aðeins á ferðina á netinu

1 Skoðanir:

  • Jahérnahérnahér!!!!!!!Gúbbs hvað þú ert búin að koma miklu í verk. Maður verður bara þreyttur af því að lesa þetta. Vona að barnið sem tók brjálæðiskastið hafi róast fljótlega

    by Anonymous Nafnlaus, at 4:31 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim