30 stiga hiti, sól og sumar
Ég get ekki beðið. Það eru bara 15 dagar í flugið til Florida. 30 stiga hiti var mér sagt. Sól og sæla, nýr kokteill á hverjum degi, bjór í fötum, fólk í sundfötum, kjólar og jakkaföt, góður matur, mikill matur, rúmlega 300 metrar á lengd og tæplega 40 metrar á breidd, 22 barir, snyrtistofa, disco, 7 heitir pottar, búðir, Spa, líkamsræktarstöð, Skokkhringur, 3 sundlaugar og meira og meira. Sjáiði þetta fyrir ykkur ? Nei, ekki ég heldur. Þetta er búið að vera svo óraunverulegt í rúmt ár og núna er þetta alveg að bresta á. Við fljúgum út 3. nóvember og komum heim 12. Mamma og pabbi ætla að vera hér heima á meðan og gæta barna og buru.
Það var hattadagur í vinnunni um daginn. Ég lofaði að láta vita, ef ég færi að ganga með hatt og já, ég gekk með hatt á föstudaginn síðasta, allan daginn. Þetta var reyndar ekki hattur. Bara derhúfa, merkt "Áfram Fylkir", en ekki hvað ? Fólk var almennt með mjög flotta hatta. Sumir voru með hatt, búinn til úr dagblöðum, aðrir, með samkvæmishatta, sem myndu hæglega hæfa drottningum og allir voru flottir.

4 Skoðanir:
Já, þetta verður gaman hjá okkur öllum kv. m
by
Nafnlaus, at 6:19 e.h.
Geggjað spennandi ferð ... ég ætla sko í svona ferð þegar ég verð komin á eftirlaun ;)
by
Nafnlaus, at 9:49 f.h.
Já, ég líka ;)
by
Linda, at 11:10 f.h.
Vá nú eru bara örfáir dagar í ferðina..jibbý !
Ætla bara að segja góða ferð krúttin mín og hafið það súper, ofur gott :D
Ykkar Ester
by
Nafnlaus, at 6:27 e.h.
Skrifa ummæli
<< Heim