Konan með hattinn

þriðjudagur, febrúar 06, 2007

Hamingjuegg

Fór í búð í dag og keypti hamingjuegg. Ég bara varð. Það stóð á eggjabakkanum að í bakkanum væru egg úr hænum sem væru ekki í búrum. Vá, þær hljóta að vera miklu hamingjusamari en grey hinar hænurnar sem verpa sínum venjulegu óhamingjösömu eggjum í búrum.

Hér er búið að vera mikið veikindabæli. Heimasætan búin að æla og æla og æla en er nú að koma til. Loksins. Greyið litla ældi allan sunnudaginn og fram að hádegi mánudagsins á ca. 20 mín. fresti. Hún er nú hætt að æla svona mikið, en er voða slöpp, ekki skrítið kannski eftir þessi átök.

Við hin erum frísk.......ennþá.

1 Skoðanir:

  • Hehe.. Ég verð nú að viðurkenna að ég hélt að þú værir að fara að skrifa um einhvern veginn öðruvísi egg..

    by Blogger Eygló, at 9:39 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim