Jólablogg ?
Jólaundirbúningurinn í algleymi núna en ég er næstumþvíalvegalgjörlega búin. Jibbí !! Á tímabili leit út fyrir að jólin kæmu ekki til mín, því á síðasta skiladegi jólakorta átti ég eftir að skrifa jólakortin, laga til, þrífa, pakka inn jólapökkum og pakka niður fyrir næstu utanlandsferð. Já, rétt, ég er aftur á leið útí heim. Núna tek ég krakkana og kallinn með. Þetta verður í 3. skipti sem börnin fara til útlanda á árinu og í 4. sinn sem við skötuhjúin förum.
Stefnan í þetta sinnið er á Kanarí. Ester er komin, sest að, búin að sjá um gubbubörn og mann, búin að taka forskot á sólbrunann (eða brúnkuna) og búin að taka forskot á bjórinn. Við förum út á annan dag jóla og dveljum í viku. Ekki slæmt.
Mér hefur fundist í allan dag, eins og það sé Þorláksmessa. Sem er gott/vont. Gott afþví ég var að deyja úr stressi að ná ekki öllu fyrir jól, kláraði því allt og er því búin með stressið, slæmt afþví ég (orkuboltinn) hef líklega ekkert að gera á morgun, nema liggja uppí sófa, sjá um börn, drekka kaffi og horfa á imbann. Kanski ég ætti að taka upp gamlan sið og skutlast í ræktina. Planið er að nýta sólina og sumarið á Kanarí og skokkast úti. Svo það er kannski ekki seinna vænna að skutlast á brettið í Hreyfingu, taka smá æfingu fyrir útiskokkið.
Haldiði að það verði bloggað aftur hér fyrir næstu utanlandsferð ? Haldiði að næstu utanlandsferð verði gerð betri skil hér, en sú síðasta ? Haldiði að bloggarinn hér, þessi með hattinn sé orðinn uppgjafabloggari ? Það kemur allt í ljós svo passið ykkur að kíkja reglulega við ;)
sjáumst.

1 Skoðanir:
Já svei mér þá.. ég er bara farin að hallast að því að konan með hattinn sé að breytast í uppgjafabloggara. Detti mér nú allar dauðar lýs úr höfði !
Koma svo kona, komdu með eitt safaríkt blogg fyrir bloggþyrstan aðdáanda ;)
by
Eygló, at 2:35 e.h.
Skrifa ummæli
<< Heim