Loforð
Ferðin til og frá Kanarí gekk algjörlega snurðulaust fyrir sig. Fórum af stað útá flugvöll uppúr hádegi á öðrum degi jóla. Þá veltandi eftir jólaboð og súkkulaðiát síðustu daga. En útá flugvöll komumst við, með aðstoð Guðmundar brósa. Þess má geta að hann gerði meira en það, því hann náði í okkur líka, á annan dag nýs árs og kom okkur heim. Launuðum við honum þá greiðann með forlátri pizzu en hann fékk engan bjór. Hvernig stóð á því ?
Á milli annars og annars gerðum við margt. Við fórum í vatnsrennibrautagarð, dýragarð, kúrekaþorp, verslunarmiðstöð, tívolí, GoKart, heimsóttum flottan sundlaugargarð, fórum út að borða og drukkum einn og einn bjór. Þetta var sældarlíf. Krakkarnir alltaf svo glaðir og ánægðir, ekkert vesen, ódýr bjór, ódýr matur, gott veður, hvað getur maður beðið um meira ?
Þegar ég kom heim var kalt, en síðan þá hefur kólnað. Mér finnst það sossum alltílagi, ef það er ekki brjálað rok með þessu. Það er bara hressandi að labba í þessu veðri, þ.e. þegar maður er kominn af stað. Mjög erfitt að koma sér út í kuldann, en þegar út er komið, með húfu, vettlinga og trefil er þetta bara næs. Ég ætti nú að gera meira af þessu, þ.e. dröslast út að labba. Letin hefur einhvernvegin náð að yfirbuga mig þessa dagana, vikurnar, já, það fer að styttast í mánuði sem ég hef sleppt hreyfingunni. Ekki gott. En það er mikið að gera og mikið að gerast í mínu lífi þessa dagana, vikurnar og ég fel mig bakvið það eins og er. En strax og vind lægir þar, lofa ég að drífa mig af stað og hoppa, skoppa, lyfta og hlaupa eins og ég hafi aldrei gert neitt annað.
Lofa því

2 Skoðanir:
Hæ !
Takk fyrir frábæra viku úti á kanarí, þetta var alveg geggjað og við bara verðum að gera þetta einhverntíman aftur :o)
Kv. Ester, Maggi og kids.
by
Nafnlaus, at 10:03 f.h.
Já, takk sömuleiðis. Sammála, við bara verðum að gera þetta fljótlega aftur :D
by
Linda, at 8:49 e.h.
Skrifa ummæli
<< Heim