5 Tindar á 5 vikum
Fór með vinnufélögum í fjallgöngu í gær. Tókum Helgafellið sem er í útjaðri Hafnarfjarðar. 5Tinda menn sáu um skipulagninguna og þeir sjá líka um skipulagningu á hinum 4 fjöllunum. Nú á sem sagt að taka 5 tinda á 5 vikum, sem er mun auðveldara samt, en að taka 5 tinda í 5 landshlutum á einni helgi, eins og þeir gerðu í vor.
Þessir strákar eru ótrúlega miklir orkuboltar, ferlega duglegir bara. Þeir veigruðu sér ekki við því að taka spretti í göngunni, á meðan við klöngruðumst þetta. Þeir stukku upp fjallið eins og fjallageitur.
Þetta var annars mjög gaman og gott innlegg í hreyfingu hjá mér, sem virðist vera að verða að fíkn. Get varla sleppt úr degi núna, án þess að mæta í ræktina.
En þetta er svo gott og sumarfríið, þetta sem settist á magann, er alveg að hverfa......

0 Skoðanir:
Skrifa ummæli
<< Heim