Konan með hattinn

föstudagur, ágúst 17, 2007

Mætt aftur

  • Búin að fá lóð í Úlfarsárdal og byrjuð að pæla í teikningum
  • Búin að fara á Shellmót í Eyjum og sjá um fararstjórn þar
  • Búin að senda frumburðinn með hjólið sitt til Danmerkur
  • Búin að senda litla barnið mitt með dúkkuna sína til Danmerkur
  • Búin að mála eitt herbergi í íbúðinni minni
  • Búin að taka tvær vikur í sumarfrí
  • Búin að heimsækja vinafólk í sumarbústöðum
  • Búin að fara í eina tjaldútilegu
  • Búin að keyra á stórann stein sem skildi eftir smá beyglu á bílnum mínum
  • Búin að hjúkra manninum, sem fótbraut sig í fótbolta
  • Búin að kaupa árskort í world class
  • Búin að éta alltof mikið af grillmat, drekka alltof mikið af bjór og borða alltof mikið af nammi
  • Búin að ákveða að ná af mér sumarfríinu, sem settist óhikað og algjörlega óboðið á magann
  • Búin að ákveða að reyna aftur við bloggfærslur

Ýmislegt búið að gerast í sumar eins og sjá má. Reynum aftur við bloggdæmið.....

0 Skoðanir:

Skrifa ummæli

<< Heim