Konan með hattinn

fimmtudagur, mars 22, 2007

Nýbakað brauð

Kallinn meiddi sig á sunnudaginn. Kom heim eftir tuðruspark, illt í bakinu. Skutlaðist í sturtu og fékk svo pabba sinn til að skutla sér á slysó. Í ljós kom, eftir viðbúna bið á biðstofu spítalans að kallgreyið var með brotið rifbein. Brotið rifbein þýðir í stuttu máli miklir verkir sem versna. Ekkert er gert við þessu, nema bíða, vona að ekkert alvarlegra gerist (brotna rifbeinið stingist í mikilvæg líffæri og valdi usla) og bryðja verkjatöflur. Sem hann og gerir.

Nú hef ég kallinn heimavinnandi á meðan ég púla í vinnunni og hann er hinn besti húsfaðir. Bakar brauð, lagar til, hjálpar syninum að læra, eldar matinn og já, gerir allt þetta, sem góðri húsmóður(föður) ber.

Ég kíkti á stóra skómarkaðinn í Perlunni í hádeginu. En ekki hvað ? Ég er skó sjúk að verða. Mig VANTAR svört upphá flott stígvél, sem ég ég notað yfir gallabuxur. Ég á nokkur pör af brúnum uppháum stígvélum. Nú, þegar á hólminn var komið fann ég engin svört stígvél sem uppfylltu kröfurnar en uppgvötaði mér til mikillar ánægju að í staðin VANTAÐI mig öklastígvél með hæl, sem voru til. Jeiii, ég labbaði út úr perlunni með poka með öklastígvélum, tösku og belti fyrir mig, tösku fyrir skvísuna og joggingbuxur á gaurinn.

Segið svo að maður kunni ekki að versla......ætli einhver segi það um mig.....humm, sá hinn sami þekkir mig þá líklegast ekki vel.

0 Skoðanir:

Skrifa ummæli

<< Heim