Konan með hattinn

mánudagur, ágúst 20, 2007

Börnin heim

Börnin komu heim í fyrrinótt. Mikið var nú gott að fá þau heim. Nú fer lífið að verða eðlilegt aftur. Mjög óeðlilegt að labba út, þegar manni dettur það í hug, borða hádegismat klukkan 3 á deginn, ef manni dettur það í hug og horfa á fréttirnar á réttum tíma, án þess að hafa áhyggjur af svefntíma barnanna. Stúlkan byrjaði á stórukrakkadeildinni í morgun og drengurinn hefur sitt 5 skólaár á miðvikudaginn.

Fór á tónleikana á Laugardalsvellinum á föstudagskvöldið. Sé ekki eftir að hafa farið, þetta var mjög gaman, en mikið agalega fannst mér Stuðmenn slappir. Var ekki að fýla þetta hjá þeim. Skemmti mér konunglega yfir Bubba, gleymdi mér alveg, söng og klappaði, setti hendur uppí loft og allan pakkann bara.

Við famelían vorum ein af rúmlega 70 sem fengum lóð í Úlfarsárdal. Lóðin verður tilbúin vonandi fyrir jól sem þýðir að við verðum komin í Villu fyrir jólin 2008 vonanandi. Þetta verður næstum 300 fm. einbýli, ekki slæmt það. Spurning um að fara að safna húsgögnum....

0 Skoðanir:

Skrifa ummæli

<< Heim