Konan með hattinn

miðvikudagur, ágúst 22, 2007

sviti og tár

Fór í Laugar í gær og tók frumburðinn með mér. Var búin að panta tíma fyrir hann hjá þjálfara í shokk salnum. Á meðan ég hljóp frá mér allt vit og horfði á Bold and beautiful, djöflaðist hann undir leiðsögn þjálfara, í tækjum ætluðum börnum frá átta til fjórtján. Þetta fannst honum ekki leiðinlegt. Eftir æfinguna skruppum við svo í pottinn í Laugardalslauginni og chilluðum þar aðeins áður en við héldum heim.

Bold and beautiful já, vá það er svo langt síðan ég hef horft á þátt þar. Gaman alltaf að detta inní svona þætti, eftir langa fjarveru. Stefani orðin eldri og enn meira gráhærðari, Brook ennþá alveg eins, dóttir hennar orðin mun líkari mömmu sinni í dag, en hún var áður og sú er ófrísk eftir fyrverandi kærasta mömmu sinnar. Yndislegt alveg. Fannst þeir sniðugir samt að finna eina sem var svona lík Brook, eftir að forveri hennar fór úr sápu í sakamálaþátt. Enda skiptir útlitið miklu meira máli en leikhæfileikar í þessum þáttum.

0 Skoðanir:

Skrifa ummæli

<< Heim