Önnur sumarbústaðarhelgi
Fórum reyndar ekki af stað fyrr en á laugardaginn og það var víst bara ég sem mátti fara. Ég var sótt uppúr hádegi í húsmæðraorlofssumarbústaðarferð. Og ég sem er svo mikil húsmóðir. Ég sagði nú við þær að það væri nærri lagi að Diddi færi með þeim. Sem betur fer sagði ég þeim það ekki fyrr en við vorum komnar og búnar að opna fyrsta bjórinn, því ég er viss um að annars hefðu þær brunað með mig til baka og náð í Didda í staðin. Hann er miklu meiri húsmóðir en ég þessa dagana, svona fótbrotinn heima. Hann er nú reyndar aðeins farinn að flísaleggja, en það er ekki mikið meira.
En sumarbústaðarferðin var bara geggjuð. Við gerðum svo margt á þessu eina kvöldi; grilluðum, spiluðum, göldruðum, borðuðum, drukkum, pottuðumst, blöðruðum og hlógum eins og vitleysingar.
Sumarbústaðarferð sem verður án efa endurtekin líka :D

0 Skoðanir:
Skrifa ummæli
<< Heim